Elko velur Elvo

Stærsta raftækjaverslun landsins hefur tekið Elvo í notkun í þjónustuveri sínu, sem tekur á móti hátt í 140 þúsund erindum á ári.

Elko velur Elvo

Stefán Hirst Friðriksson, framkvæmdastjóri Elvo, og Helgi Snær Gestsson, hópstjóri þjónustuvers Elko.

Elko, stærsta raftækjaverslun landsins, hefur tekið Elvo í notkun í þjónustuveri sínu, sem tekur á móti hátt í 140 þúsund erindum á ári.

„Það eru stór tímamót fyrir okkur að Elko sé komið í loftið með Elvo. Þegar þjónustuver tekur á móti hátt í 140 þúsund erindum á ári skiptir máli að starfsfólk geti séð strax hvað hefur þegar verið gert í hverju máli og hvað þarf að gerast næst,“ segir Stefán Hirst Friðriksson, framkvæmdastjóri Elvo.

Þjónusta og viðskiptatengsl á einum stað

Elvo safnar erindum úr ólíkum samskiptaleiðum á einn stað svo starfsfólk geti séð stöðu hvers máls, hver ber ábyrgð á því og hvaða samskipti hafa þegar átt sér stað.

Við hjá Elko viljum að hver viðskiptavinur fái hraða og persónulega þjónustu, sama hvaða leið hann velur til að hafa samband við okkur. Við völdum Elvo þar sem kerfið sameinar þjónustu og viðskiptatengsl á einum stað og gefur starfsfólki okkar betri yfirsýn yfir hvert mál.

Helgi Snær Gestsson•Hópstjóri þjónustuvers Elko

Gervigreindin gerir drög, starfsfólkið ræður

Elvo nýtir meðal annars gervigreind til að útbúa drög að svörum við fyrirspurnum viðskiptavina. Starfsfólk fer yfir drögin og getur aðlagað þau áður en svarið er sent.

Hugmyndin er einföld: gervigreindin sér um undirbúninginn og fólkið tekur ákvörðunina.

Yfir 40 íslensk fyrirtæki nota Elvo

Elko bætist í hóp yfir 40 íslenskra fyrirtækja sem nota Elvo, þar á meðal eru Samskip, Olís, World Class og Tix.

Viðskiptablaðið fjallaði um samstarfið: Elko tekur upp íslenskt þjónustukerfi.

Lærðu meira

Viltu vita meira um Elvo?

Bókaðu kynningu