Svörin skrifa sig. Þú samþykkir.
Svarþjónninn er Elvo-þjónninn í pósthólfinu þínu, þjónustufulltrúi knúinn gervigreind sem les hvert erindi sem berst, hvort sem er í tölvupósti, á samfélagsmiðlum eða úr kerfunum sem þú tengir. Hann flokkar það, skrifar drög að svari sem þú samþykkir og lýkur kvittunum og staðfestingum sjálfkrafa.
Hvað hann gerir í dag
Hann tæmir pósthólfið með þér, ekki á bak við þig.
Sömu spurningarnar berast aftur og aftur: staða pantana, opnunartímar, hvert eigi að senda reikning. Svarþjónninn les hverja fyrir sig, merkir hana og sendir áfram, og skrifar tilbúið svar byggt á þekkingunni þinni. Þú heldur stjórninni: samþykkir, breytir eða sendir.
Frá móttöku að svari
Vinnan sem hverfur af borðinu þínu.
Drög sem þú samþykkir
Tilbúið svar bíður við hvert erindi, skrifað út frá þínum eigin staðreyndum. Samþykktu það, breyttu því eða skrifaðu það upp á nýtt. Ekkert fer út án þín.
Flokkun og áframsending
Hvert erindi er lesið, merkt og sent á rétt teymi áður en nokkur opnar pósthólfið.
Einföld erindi afgreidd
Kvittanir og staðfestingar eru auðkenndar og afgreiddar sjálfkrafa, svo þær fylla aldrei biðröðina.
Sjálfvirk svör
Sjálfvirk sending er í boði í beta og hægt að kveikja á henni ef þú vilt. Sjálfgefið skrifar þjónninn drög sem þú samþykkir, svo þú heldur fullri stjórn.
Mælt, ekki giskað
Hjá viðskiptavinum Elvo leysist um þriðjungur erinda án þess að starfsmaður komi nálægt þeim. Þetta eru venjubundin, endurtekin erindi sem Svarþjónninn tekur af herðum teymisins. Hin erindin ná til rétta aðilans hraðar, með samhengið þegar til staðar.
Reiknaðu hvað hann sparar þér.
Sláðu inn fjölda erinda og fulltrúa og sjáðu áætlaðan sparnað.
Rauntímagögnin þín
Þjónninn svarar með gögnunum þínum, ekki almennu svari.
Elvo tengist kerfunum sem þú notar nú þegar, svo þjónninn les rauntímasamhengi og flettir sjálfur upp: hann sér verð, lagerstöðu og stöðu pöntunar áður en hann svarar. Svarið er því rétt fyrir þennan viðskiptavin á þessari stundu, ekki almenn ágiskun.
Lesið úr Shopify og DK í rauntíma
PaydaySömu tengingar nýtast öllum þjónunum: í spjalli, tölvupósti og í síma svarar þjónninn með réttu tölunum þínum, ekki almennu svari.
Einn þjónn, allar samskiptaleiðir
Elvo-þjónninn svarar hvar sem viðskiptavinurinn er.
Sami þjónninn, sama þekkingin: á vefnum, í tölvupósti, á samfélagsmiðlum og í síma.
Algengar spurningar
Sendir hann sjálfkrafa tölvupóstsvör?
Já, það er í boði í beta ef þú óskar eftir því. Sjálfgefið er þó að hann skrifi drög að svari og manneskja samþykki það, svo þú haldir fullri stjórn. Hann lokar líka einföldum, sjálfvirkum erindum eins og kvittunum af sjálfu sér.
Þarf ég að skipta um tölvupóstkerfi?
Nei. Elvo tengist Outlook eða Gmail sem þú notar nú þegar og dregur líka inn skilaboð af samfélagsmiðlum og úr kerfunum sem þú tengir. Ekkert þarf að flytja til að byrja.
Hvernig veit hann rétta svarið?
Út frá þekkingunni þinni í Þekkingu: vefsíðunni, hjálparsíðum, skjölum og fyrri svörum. Hann svarar aðeins út frá því og getur flett upp rauntímagögnum eins og pöntunum eða reikningum þegar hann er tengdur.
Hve stóran hluta tölvupósts getur hann tekið af okkur?
Það fer eftir því hversu endurtekin skilaboðin þín eru. Teymi með mikið af stöðluðum beiðnum sjá mestan ávinning. Í kynningu metum við raunhæft hlutfall þitt út frá þínum eigin tölum.
Sjáðu hvað Svarþjónninn hreinsar fyrir þig.
Bókaðu stutta kynningu: við förum yfir pósthólfið þitt og sýnum hvað hann skrifar drög að og afgreiðir.