Sameiginlegt innhólf
Tölvupóstur, vefspjall, Messenger, Instagram, WhatsApp og símtöl lenda öll í einu innhólfi. Teymið sér hver sinnir hverju og svarar án þess að stíga hvert á annað.
Þjónustuborðið
Þjónustuborðið er þar sem allt kemur saman: tölvupóstur, spjall, samfélagsmiðlar og sími. Staðurinn þar sem Elvo-þjónninn vinnur með teyminu þínu og fólkið þitt stjórnar.
Sameiginlegt innhólf
Þjónustuborðið er þar sem öll erindi, allt fólkið og allar reglurnar mætast, svo hvert mál á sér einn stað og einn ábyrgðaraðila.
Tölvupóstur, vefspjall, Messenger, Instagram, WhatsApp og símtöl lenda öll í einu innhólfi. Teymið sér hver sinnir hverju og svarar án þess að stíga hvert á annað.
Beindu erindum á rétt teymi eftir rás, efni eða netfangi, svo ekkert erindi felur sig í persónulegu innhólfi. Þið sjáið í rauntíma hver vinnur í hverju.
Reglur flokka, merkja og forgangsraða um leið og erindi berst, og SLA-klukkan tryggir að ekkert dettur á milli eða gleymist.
Rauntíma mælaborð fyrir þjónustustöðu, svartíma, lausnarhlutfall og frammistöðu teymisins, og greiningar sem sýna hvað þjónninn léttir af þér.
Viðskiptavinir

„Fyrir Elvo vorum við að svara erindum á 5 stöðum sem líkt og gefur að skilja er í senn tímafrekt og eykur líkur á að mál falli á milli. Við höfum upplifað mikinn tímasparnað og almenna aukningu á þægindum í daglegum verkefnum með Elvo.“

„Við fáum margar fyrirspurnir frá nemendum í hverri viku. Með Elvo lenda þær allar á sama stað, flokkast sjálfkrafa og gervigreindin forskrifar svar. Ég hef síðan fulla yfirsýn yfir öll svör sem við sendum frá okkur.“

„Okkur vantaði leið til að fá allar okkar fyrirspurnir á einn stað og tryggja að þeim væri svarað hratt og skipulega. Það hefur reynst mjög vel að fá allt á sama staðinn. Tillögur frá gervigreindinni einfalda vinnuna og flýta verulega fyrir.“

„Elvo gerir okkur kleift að mæla fjölda fyrirspurna, hvaðan þær berast og hve langan tíma það tekur okkur að svara. Engin hætta á að starfsmenn eyði tíma í að svara sömu fyrirspurn. Elvo teymið er líka mjög liðlegt í að bæta við eiginleikum sem við köllum eftir.“


„Elvo hefur gjörbreytt öllu skipulagi hjá okkur. Núna koma öll skilaboð sem send eru inn á sameiginlegu pósthólfin og miðlana okkar á einn og sama staðinn þar sem allir geta tekið til sín mál og klárað þau. Sparar mikinn tíma og er miklu skilvirkara en áður.“
Þjónninn vinnur inni í borðinu
Flest gervigreindartól sitja við hliðina á þjónustunni þinni og kasta erfiðu málunum yfir vegginn. Elvo-þjónninn býr í sama þjónustuveri og teymið þitt, með sama innhólf, sömu þekkingu og sömu reglur, svo sjálfvirkni og fólk eru eitt kerfi, ekki tvö.
Sami þjónninn, sama þekkingin: Spjallþjónn Svarþjónn Raddþjónn
Þjálfaðu þjóninn á þínum skjölum, vefsíðum og fyrri samskiptum. Hann lærir um fyrirtækið þitt og skrifar nákvæm svör samstundis.
Gervigreindin flokkar erindin og forgangsraðar þeim, dregur saman fyrri samskipti og sækir gögn úr CRM og tengdum kerfum áður en þjónustufulltrúi opnar málið.
Svardrög í rödd vörumerkisins sem þú yfirferð, breytir og samþykkir áður en sent er. Einföld mál getur gervigreindin leyst sjálf ef þú leyfir.
Sjálfvirkar breytingar gerast aðeins innan reglna sem þú setur, og hvert mál geymir allan ferilinn: hver bjó til, hver samþykkti og hvað breyttist.
Samhengi við höndina
Sömu samþættingar og næra þjónana birta líka fólkinu þínu samhengið beint við samtalið: upplýsingar úr CRM, staða pöntunar og reikningsstaða, allt á einum stað. Enginn þarf að skipta um glugga eða spyrja viðskiptavininn aftur.
LS Retail
Payday
Sama tenging nýtist báðum: þjónninn notar réttu tölurnar í svörum og drögum, og fólkið þitt sér sama samhengi þegar það tekur við.
Öryggi og persónuvernd í fyrirrúmi
Sjá gagnaöryggiJá. Þjónustuborðið er sameiginlegt innhólf byggt fyrir teymi, það tengist Outlook eða Gmail og færir spjall, samfélagsmiðla og síma á sama stað, með ábyrgð og yfirsýn sem venjulegt innhólf getur ekki veitt.
Já. Elvo tengist bæði Google Workspace og Microsoft 365 (Azure og Outlook), svo tölvupósturinn heldur áfram að berast inn og út gegnum kerfið sem þið notið núna. Þú flytur ekki tölvupóstinn þinn, Þjónustuborðið samstillist við hann og leggst ofan á sem sameiginlegt lag fyrir samvinnu, flokkun og gervigreind.
Nei. Tengdu rásirnar sem þú notar, haltu áfram að vinna og bættu þjóninum við þegar þú ert tilbúin(n). Engu er hent til að byrja.
Þú flokkar fólk í teymi, beinir samtölum til þeirra og stjórnar hver sér og deilir hverju. Persónuleg vinna og teymisvinna haldast skýrt aðskildar.
Já, íslenskt málfar, íslenskar samþættingar eins og DK, Payday, Dropp, Pósturinn, Já.is, Bókun og Caren, og evrópskar persónuverndarkröfur (GDPR).
Bókaðu kynningu og við leiðum teymið þitt í gegnum það með þínum eigin rásum.