Hvernig World Class notar Elvo
Þjónustustjórar World Class svara fyrirspurnum um áskriftir, uppsagnir og kort í tölvupósti, á Instagram og á Facebook. Gervigreind Elvo skrifar drög að svörum sem þær fara yfir og setja sína lokahönd á, og samstarfsfólk er merkt inn í mál í stað þess að tölvupóstur sé áframsendur.
- Notar mest
- Drög frá gervigreind · Stöðluð svör
- Svartími
- Innan sólarhrings, áður 2–3 dagar
- Rásir
- Tölvupóstur · Instagram · Facebook
„Þetta sparar þvílíkt mikinn tíma að þetta er bara eins og að fá auka starfsmann.“
Hvernig Tix notar Elvo
Tix á í samskiptum við bæði viðburðahaldara og miðakaupendur. Áður var hvor hópur í sínu pósthólfi og samfélagsmiðlar á enn öðrum stað. Nú eru öll samskipti, líka innri athugasemdir, á einum stað, og teymið sér strax þegar sami einstaklingur hefur samband á mörgum rásum.
- Innleiðing
- 2 klukkutímar
- Áður
- 6 gluggar á hverjum morgni
- Rásir
- Tölvupóstur · Messenger · Instagram
„Ef við myndum missa Elvo væri það hræðilegt fyrir okkur, af því að þetta er líflínan okkar.“
Hvernig Regn notar Elvo
Hjá Regni byrjar dagurinn í Elvo. Þar sér framkvæmdastjórinn allar fyrirspurnir, sama hvaðan þær koma, notar stöðluð svör fyrir algengar spurningar og útdeilir málum á markaðs- eða tæknideild með einum smelli.
- Innleiðing
- 1 dagur
- Notar mest
- Stöðluð svör · Útdeiling mála
- Rásir
- Tölvupóstur · Instagram · Facebook
„Það sem breyttist við að innleiða Elvo var bara allt annað líf.“
Viltu bætast í hópinn?
Bókaðu stutta kynningu og við sýnum þér hvernig Elvo myndi virka fyrir þitt teymi.
Bóka kynninguFleiri umsagnir

„Fyrir Elvo vorum við að svara erindum á 5 stöðum sem líkt og gefur að skilja er í senn tímafrekt og eykur líkur á að mál falli á milli. Við höfum upplifað mikinn tímasparnað og almenna aukningu á þægindum í daglegum verkefnum með Elvo.“

„Elvo gerir okkur kleift að mæla fjölda fyrirspurna, hvaðan þær berast og hve langan tíma það tekur okkur að svara. Engin hætta á að starfsmenn eyði tíma í að svara sömu fyrirspurn. Elvo teymið er líka mjög liðlegt í að bæta við eiginleikum sem við köllum eftir.“


„Okkur vantaði leið til að fá allar okkar fyrirspurnir á einn stað og tryggja að þeim væri svarað hratt og skipulega. Það hefur reynst mjög vel að fá allt á sama staðinn. Tillögur frá gervigreindinni einfalda vinnuna og flýta verulega fyrir.“

„Við fáum margar fyrirspurnir frá nemendum í hverri viku. Með Elvo lenda þær allar á sama stað, flokkast sjálfkrafa og gervigreindin forskrifar svar. Ég hef síðan fulla yfirsýn yfir öll svör sem við sendum frá okkur.“

„Elvo hefur gjörbreytt öllu skipulagi hjá okkur. Núna koma öll skilaboð sem send eru inn á sameiginlegu pósthólfin og miðlana okkar á einn og sama staðinn þar sem allir geta tekið til sín mál og klárað þau. Sparar mikinn tíma og er miklu skilvirkara en áður.“



