Flest þjónustuteymi eyða enn ótrúlega miklum tíma í að hoppa á milli kerfa, fletta upp upplýsingum og sinna handvirkum verkefnum sem ættu að gerast sjálfkrafa. Síðustu vikur höfum við uppfært Elvo með þetta eina markmið í huga. Við viljum tryggja hámarkshraða og fullkomna yfirsýn yfir öll samtöl á einum stað. Hér er samantekt á nýju verkfærunum sem við vorum að keyra út og munu spara ómælda vinnu.
Gervigreindarstika, mælaborð, spjallbox og lifandi tengingar 🤖📈 ⚡️

Gervigreindarstika í svarglugganum

Við bættum nýrri stiku beint í svargluggann sem hjálpar þér að orða og klára svör mun hraðar. Með einum smelli geturðu látið útbúa drög byggt á sögu samtalsins, lagfært málfar, breytt tóninum eða þýtt svar yfir á önnur tungumál.
Allar breytingar birtast fyrst í forskoðun svo þú sérð nákvæmlega hverju var breytt áður en nokkuð er sent frá ykkur. Hugsunin okkar er skýr, gervigreind á að aðstoða starfsfólkið og létta vinnuna en ekki tala fyrir það.
Nýtt mælaborð sem sýnir raunverulega frammistöðu

Við höfum gjörbreytt mælaborðinu hjá okkur til að gefa enn dýpri innsýn í þjónustuna. Stóra breytingin snýst um að gera allar mælingar fullkomlega rekjanlegar. Nú geturðu smellt á hvaða tölu sem er á mælaborðinu og séð raunverulegu málin sem liggja að baki henni. Það gerir þér kleift að skoða þróun hjá ykkur niður í öreindir eða rýna í vinnu einstakra fulltrúa.
Við bættum einnig við nýjum mælikvörðum eins og enduropnunum mála og nafnlausum samanburði við sambærileg fyrirtæki á markaðnum, svo þú sérð nákvæmlega hvar þitt fyrirtæki stendur.
Snjallara vefspjall og samfélagsmiðlar

Vefspjallið á síðunni þinni svarar nú fyrirspurnum viðskiptavina samstundis og allan sólarhringinn út frá þekkingargrunninum þínum. Ef það dugar ekki til að leysa málið, safnar spjallið sjálfkrafa samskiptaupplýsingum og býður viðskiptavini að ná sambandi við starfsmann. Allt samtalið færist þá yfir í Elvo með fullri sögu svo teymið geti haldið áfram þar sem frá var horfið.
Við bættum líka við sjálfvirkum svörum fyrir Messenger og Instagram. Það þýðir að fyrirspurnir af samfélagsmiðlum fá svar strax og lenda á sama stað í Elvo og aðrir póstar, sem styttir biðtíma viðskiptavina án þess að teymið þurfi að vakta mörg kerfi.
Lifandi tengingar við Google Docs og Sheets

Þekkingargrunnurinn í Elvo getur nú sótt gögn beint úr Google Docs, Sheets eða af vefsíðum með lifandi tengingu. Þú tengir heimildina einu sinni og kerfið uppfærir sig sjálfkrafa á 15 mínútna fresti.
Ef viðskiptavinur spyr til dæmis um verð á tiltekinni vöru, flettir gervigreindin upp nýjustu verðskránni ykkar í Google Sheets og útbýr tilbúið drög að tilboði á örskotsstundu. Þú þarft ekki lengur að afrita upplýsingar handvirkt á milli kerfa, því ef þú breytir skjalinu lærir kerfið það sjálfkrafa. Þetta sparar daglega handavinnu og tryggir að svörin séu alltaf rétt.
Bókhald, verslun og afhending á einum stað

Ný samþætting við Reglu dregur upplýsingar um viðskiptavini og reikningastöðu sjálfkrafa inn í Elvo. Þú sérð því samhengið strax, án þess að þurfa að hoppa á milli kerfa til að fletta upp stöðunni á reikningum eða fá frekari upplýsingar um viðskiptavininn.
Regla bætist í vaxandi hóp samþættinga sem þú getur tengt beint við Elvo á örfáum sekúndum. Með því að tengja saman kerfi eins og HubSpot, Business Central, DK, Payday, Shopify, WooCommerce og Dropp, ertu með pöntunarsögu, sendingar og bókhald á sama stað og þú svarar viðskiptavininum.
Betri leit sem finnur samtölin á örskotsstundu

Nú er mun fljótlegra að finna og grafa upp gömul erindi í Elvo. Stóra breytingin er að þú sérð nýja auðkennda textabúta með leitarorðunum beint í niðurstöðunum, svo þú þekkir rétta samtalið strax án þess að þurfa að opna það.
Kerfið leitar nú sjálfvirkt í heitum á viðhengjum og skrám. Ef ekkert finnst með nákvæmri leit rýmkar kerfið skilyrðin sjálfkrafa í stað þess að skila auðu, sem sparar dýrmætan tíma þegar mikið er að gera.
Snjallara flæði og fljótlegri vinnubrögð
- Betra spjall og skilaboð innanhúss: Nú geturðu fest mikilvæg samtöl efst og raðað þeim handvirkt eins og þér hentar, óháð því hvernig aðrir stilla sína stiku. Nýlega skoðuð mál birtast líka efst þegar leitin er opnuð.
- Sérgluggar fyrir samtöl: Þú getur smellt samtali eða drögum út í sérstakan fljótandi glugga til að vinna í mörgum málum í einu eða bera tvö samtöl saman hlið við hlið.
- Flýtilyklar fyrir algengustu aðgerðir: Fyrir þau sem vilja vinna hratt höfum við bætt við heildstæðu setti af flýtilyklum. Þú getur svarað, áframsent, úthlutað, sett í bið og stofnað ný mál án þess að sleppa lyklaborðinu.
Þjónusta á ekki að vera kostnaðarliður heldur samkeppnisforskot
Áskorunin í þjónustu er sjaldnast skortur á vilja heldur tíminn sem fer í daglega handavinnu og að hoppa á milli ólíkra kerfa. Þegar teymið fær verkfæri til að halda fullri yfirsýn og vinna saman á einum stað, skapast loksins svigrúm til að einbeita sér að viðskiptavininum.
Bestu kveðjur,
Stefán Hirst Friðriksson
framkvæmdastjóri Elvo