„Það var bara allt annað líf“ – Regn innleiddi Elvo á einum degi

Ásta, stofnandi Regns, var komin með fyrirspurnir á Instagram, Facebook og í tölvupósti og var alltaf hrædd um að missa bolta. Innleiðingin á Elvo tók einn dag, og eftir það „var ekki aftur snúið“.

„Það var bara allt annað líf“ – Regn innleiddi Elvo á einum degi

Hjá Regni berast fyrirspurnir víða að. Eins og hjá mörgum vaxandi fyrirtækjum var haldið utan um þær „með frekar lífrænum hætti“, segir Ásta, stofnandi og framkvæmdastjóri Regns.

Að slökkva elda á mörgum stöðum

Það var svolítið kaótískt. Við vorum bara skautandi á milli vettvanga til þess að reyna að slökkva elda.

Ásta•Stofnandi Regns

Fyrirspurnir komu á Instagram, í tölvupósti, á Facebook og jafnvel víðar. Ásta þurfti stöðugt að flakka á milli og fylgjast með hverjum stað. „Maður óttaðist alltaf að vera að missa einhverja bolta,“ segir hún.

Allt annað líf

Þegar Elvo var komið inn breyttist myndin strax.

Það sem breyttist við að innleiða Elvo var bara allt annað líf. Ég opnaði Elvo og þar birtust allar fyrirspurnir, sama hvaðan þær komu.

Ásta•Stofnandi Regns

Auk þess að hafa allt á einum stað fékk Ásta betri yfirsýn yfir umfang notendaþjónustunnar og hve margar fyrirspurnir berast á dag.

Innleiðing á einum degi

Það tók held ég bara einn dag. Um leið og Elvo var komið upp í tölvunni hjá mér. Ég fékk alveg einstaklega góða þjónustu við að setja þetta allt saman upp og koma þessu af stað. Og um leið og það var komið var ekki aftur snúið.

Ásta•Stofnandi Regns

Ásta segir sérstaklega frá augnabliki sem sýndi muninn. Hún var byrjuð að þjálfa íhlaupastarfsmann áður en Elvo kom til sögunnar. Þegar starfsmaðurinn mætti aftur til vinnu var Elvo komið upp.

Ég sýndi henni: „Heyrðu, þú þarft ekki lengur að fara inn á alla þessa miðla, þetta er bara komið hér.“ Það var rosalega gaman að sjá viðbrögðin hennar.

Ásta•Stofnandi Regns

Byrjar hvern einasta dag í Elvo

Í dag er Elvo fyrsti viðkomustaður dagsins. „Ég byrja hvern einasta dag í vinnunni á að fara inn á Elvo,“ segir Ásta. „Þar hef ég yfirsýn yfir verkefni dagsins fyrir notendaþjónustuna.“

Hún notar stöðluð svör mikið, því margar fyrirspurnir eru sambærilegar. Mestu munar þó um samskiptin innanhúss:

Ég er framkvæmdastjóri og ég hef yfirsýnina. Þegar það kemur verkefni sem heyrir undir markaðsdeildina eða tæknideildina get ég strax útdeilt því á réttan stað. Ég þarf bara að ýta á einn takka.

Ásta•Stofnandi Regns

Gervigreindin tekur fyrsta skrifið

Ásta hefur alltaf verið spennt fyrir gervigreind í rekstrinum, því hún sparar tíma og „hugsar ansi mikið hraðar heldur en við gerum“. Hún fer þó alltaf yfir skilaboðin áður en þau fara út úr húsi.

Það er mjög þægilegt að láta gervigreindina taka fyrsta skrifið.

Ásta•Stofnandi Regns

Tilbúin fyrir jólin

Þegar hasarinn byrjar hjá okkur í jólatörninni verður miklu auðveldara að sinna kröfum viðskiptavinarins, vegna þess að við erum komin með Elvo.

Ásta•Stofnandi Regns

Ef hún þyrfti að fara aftur í gamla fyrirkomulagið væri fyrsta verkið að „finna einhvern aðila eins og Elvo til að hjálpa mér“. Og ráðin til annarra teyma eru einföld:

Ég myndi segja hiklaust: endilega sláið til, því þetta mun einfalda líf ykkar umtalsvert.

Ásta•Stofnandi Regns

Í einni setningu: „Þægilegt kerfi og frábær þjónusta.“

Reynslusaga

Innleiðing á einum degi, líka hjá þér?

Við sýnum þér hvernig öll samskipti komast á einn stað og hvernig innleiðingin gengur fyrir sig.

Bóka kynningu