„Þetta er líflínan okkar“ – hvernig Tix sameinaði öll samskipti á einum stað

Áður byrjaði hver vinnudagur hjá Tix á því að opna sex mismunandi glugga. Í dag opnar teymið bara Elvo. Arna Þorsteinsdóttir, rekstrarstjóri Tix, segir frá því hvernig innleiðingin gekk „töfrum líkast“ og hvers vegna hún myndi ekki vilja mæta í vinnuna án Elvo.

„Þetta er líflínan okkar“ – hvernig Tix sameinaði öll samskipti á einum stað

Tix selur miða á viðburði um allt land og á í daglegum samskiptum við tvo ólíka hópa: viðburðahaldara og miðakaupendur. Fyrirspurnirnar koma alls staðar að, í tölvupósti, á Messenger, á Instagram og í gegnum síma.

Sex gluggar áður en dagurinn byrjaði

Áður en Tix tók upp Elvo var hver tegund fyrirspurna í sínu pósthólfi. Eitt hólf var fyrir viðburðahaldara og annað fyrir miðakaupendur. Skilaboð á samfélagsmiðlum fóru í gegnum þjónustu Meta.

Hver vinnudagur byrjaði á því að við þurftum að opna vafrann, persónulega pósthólfið, pósthólf viðburðahaldara, pósthólf miðahafa, Facebook, Instagram og svo símann.

Arna Þorsteinsdóttir•Rekstrarstjóri Tix

Vandinn var ekki bara tíminn sem fór í þetta. Þegar sami viðskiptavinur sendi tölvupóst, svo skilaboð á Messenger og loks á Instagram, var hætta á að eitthvað félli á milli. Stundum fékk viðkomandi sama svarið þrisvar, með mismunandi orðalagi. „Þetta var bara orðið smá hringavitleysa,“ segir Arna.

Einn staður fyrir öll samskipti

Með Elvo breyttist uppsetning vinnudagsins. Nú opnar teymið eitt kerfi og þar er allt sem þarf.

Nú opnum við bara Elvo og þar er allt sem við þurfum. Hvar sem fólk vill ná í okkur birtist það inni í Elvo.

Arna Þorsteinsdóttir•Rekstrarstjóri Tix

Þegar sami viðskiptavinur hefur samband á þremur stöðum sér teymið það strax og einn starfsmaður svarar honum. Arna nefnir dæmi sem allir sem hafa týnt miða kannast við. Miðakaupandi finnur ekki miðann rétt fyrir viðburð og sendir tölvupóst, Messenger-skilaboð og Instagram-skilaboð í einu. Í Elvo sést strax að eitthvað liggur á, málið er afgreitt á augabragði „og viðkomandi kemst áhyggjulaus á viðburðinn sinn“.

Tix notar Elvo líka fyrir innri samskipti, til dæmis athugasemdir við einstök mál, svo allt teymið hefur sömu upplýsingar.

Innleiðingin: tveir klukkutímar

Tix var einn af fyrstu viðskiptavinum Elvo. Arna viðurkennir hlæjandi að þau hafi verið „mjög erfiðir kúnnar“ í byrjun, með alls konar sérþarfir og hugmyndir. Hún bjóst við að innleiðingin tæki langan tíma.

Ég átti alveg von á að það myndi taka dálítið langan tíma fyrir starfsfólk að venjast kerfinu. En Stefán kom og var með okkur í tvo klukkutíma, og svo bara skildi hann okkur eftir. Þetta gekk bara töfrum líkast.

Arna Þorsteinsdóttir•Rekstrarstjóri Tix

Hún hrósar líka þjónustunni eftir innleiðingu: „Okkur líður stundum eins og það sé beðið eftir að við höfum samband, af því að okkur er svarað strax og strax farið að vinna í málunum.“

„Takk fyrir skjót svör“

Arna sá fljótt að Elvo myndi gera daglegt starf auðveldara. Það var þegar kerfið kom inn á álagstíma, innan nokkurra daga frá innleiðingu.

Þegar það kom fyrst „takk fyrir skjót svör“ frá viðskiptavini, það var mjög þægileg tilfinning.

Arna Þorsteinsdóttir•Rekstrarstjóri Tix

Hún segir að tímasparnaðurinn sé bara hluti af ávinningnum. Mestu skiptir meira samræmi og betri yfirsýn yfir öll erindi sem berast.

Gervigreind með manneskju á bak við

Teymið notar svartillögur gervigreindar Elvo, en manneskja les alltaf yfir. „Eftir því sem við notum hana meira, því betri verða tillögurnar,“ segir Arna. „Það er ótrúleg þægindaaukning að fá svör sem eru orðuð alveg eins og við viljum orða þau.“

Jólatörnin framundan

Jólin eru annasamasti tími ársins hjá Tix: stórir viðburðir, fleiri fyrirspurnir og meiri samskipti við viðburðahaldara, viðburðahús og miðakaupendur.

Að fara inn í jólatörnina núna með allt á einum stað er ótrúlega þægilegt. Við erum öruggar í því sem við erum að svara og vitum hvar öll okkar gögn eru geymd. Þannig að við erum bara spenntar fyrir þessu.

Arna Þorsteinsdóttir•Rekstrarstjóri Tix

Líflínan

Þegar Arna er spurð hvað myndi gerast ef Elvo hyrfi á morgun er svarið skýrt:

Það væri hræðilegt fyrir okkur, af því að þetta er líflínan okkar. Þetta heldur utan um sögu samskiptanna og mikilvægar upplýsingar um hvernig við getum þjónustað viðskiptavini okkar sem best.

Arna Þorsteinsdóttir•Rekstrarstjóri Tix

Til annarra þjónustuteyma segir hún að Elvo sé heildarlausn sem styrki samvinnu, því „það er enginn án upplýsinga“. Í einni setningu lýsir hún Elvo svona: „Þægindaaukning og betri samskipti.“

Reynslusaga

Viltu sjá hvernig Elvo myndi virka fyrir þitt teymi?

Við sýnum þér hvernig öll samskipti komast á einn stað, og innleiðingin tekur ekki langan tíma.

Bóka kynningu