Úr fimm kerfum yfir á einn stað: Hvernig Tix náði stjórn á þjónustuálagi

Úr fimm kerfum yfir á einn stað: Hvernig Tix náði stjórn á þjónustuálagi

Þegar við settum Elvo í loftið 1. október vissum við að ef lausnin átti að virka í alvöru, þyrfti hún að standast prófið þegar álagið er sem mest.

Fyrir stórt miðasölufyrirtæki eins og Tix er þjónusta ekki aukaatriði. Þegar miðar á vinsæla viðburði fara í sölu getur fjöldi fyrirspurna margfaldast á örfáum mínútum. Þá skiptir öllu máli að hafa góða yfirsýn, geta forgangsraðað og svarað hratt, án þess að eitthvað falli á milli.

Að taka inn nýja lausn snemma í okkar ferðalagi er ákvörðun sem felur í sér áhættu. Tix tók hana með okkur. Frá fyrsta degi hefur þetta verið samvinna frekar en hefðbundin innleiðing. Við höfum þróað Elvo með Tix og fínpússað kerfið út frá þeirra áskorunum.


Allar fyrirspurnir á einum stað

Áður en Tix hóf notkun á Elvo voru fyrirspurnir að berast á fimm mismunandi stöðum. Eins og gefur að skilja er það bæði tímafrekt og eykur líkur á að erindi glatist.

„Fyrir Elvo vorum við að svara erindum á fimm stöðum. Við höfum upplifað mikinn tímasparnað og almenna aukningu á þægindum í daglegum verkefnum," segir Arna Margrét Johnson, rekstrastjóri Tix miðasölu.

„Í dag berast öll erindi á einn stað. Það veitir teyminu heildarmynd, flýtir fyrir afgreiðslu og tryggir að ekkert mál falli á milli jafnvel þegar álagið nær hámarki," bætir Arna við.


Eiginleikarnir sem breyta leiknum

Þegar mikið liggur við skiptir hver sekúnda máli. Hjá Tix hafa nokkrir ákveðnir eiginleikar í Elvo slegið í gegn hjá starfsfólkinu:

Sniðmát og gervigreind: Aðstoðar teymið við að móta og leysa svör hratt og örugglega án þess að missa mannlega snertinguna.

Innanhússamtöl: Teymið getur rætt saman um stök mál og leyst úr flóknum fyrirspurnum án sendinga á milli margra kerfa.

Úthlutun mála: Auðvelt er að senda mál á rétta einstaklinga eftir þörfum hvers verkefnis.

Kerfið er auðvelt í notkun og tók það því skamma stund að læra á það. Þarfir notanda eru í forgrunni og því margt sem okkur fannst við nú þegar kunna um leið og við byrjuðum.

Arna Margrét JohnsonRekstrarstjóri Tix


Samvinna sem skilar árangri

Hjá Elvo leggjum við áherslu á að vera ekki bara hugbúnaður, heldur bakhjarl. Teymið hjá Tix hefur verið duglegt að koma með ábendingar og tillögur að betrumbótum og við höfum tekið þeim fagnandi til að gera kerfið enn betra.

Eins og Arna orðar það sjálf:

„Starfsmenn Elvo hafa verið okkur innan handar í hverju skrefi og hefur innleiðingin gengið vonum framar. Við getum með sanni sagt að kerfið er í senn þægindaaukning og tímasparnaður fyrir okkur og gætum við ekki verið ánægðari með að hafa valið Elvo.“

Góð tækni á að létta undir

Tækni á að létta undir með fólki, sérstaklega þegar álagið er sem mest. Í þjónustuálagi snýst þetta sjaldnast um að gera hlutina flóknari, heldur um að fjarlægja núning, svo teymið geti einbeitt sér að því sem skiptir máli, sem er að veita góð svör. Samstarfið við Tix sýnir að þegar einfaldleiki, góð yfirsýn og réttu tækin mætast, verður mikilvægt þjónustuálag miklu auðveldara viðureignar.

Lærðu meira

Viltu vita meira um Elvo?

Bókaðu kynningu
Úr fimm kerfum yfir á einn stað: Hvernig Tix náði stjórn á þjónustuálagi | Elvo