World Class innleiðir gervigreind í þjónustu

World Class innleiðir gervigreind í þjónustu

World Class er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins, sem þjónustar daglega þúsundir viðskiptavina. Fyrirspurnir til þeirra berast í miklu magni í gegnum tölvupóst, Instagram og Facebook og því kröfurnar um hraða í svörun, samræmi og yfirsýn miklar.

Áskorun World Class snerist þó ekki um skort á fyrirspurnum, heldur flækjustig tengt svörun og yfirsýn. „Okkur vantaði leið til að fá allar fyrirspurnir á einn stað og tryggja að þeim væri svarað hratt og skipulega,“ segir Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class.

Allt í einu innhólfi

Til að mæta þessum áskorunum hóf World Class notkun á Elvo, nýrri íslenskri samskiptalausn sem safnar öllum erindum í eitt sameiginlegt innhólf. Nú vinna starfsmenn úr tölvupóstum og skilaboðum frá samfélagsmiðlum í sama viðmóti.

Þetta einfaldar daglega vinnu, minnkar líkur á að erindi týnist og gerir fyrirtækinu kleift að vera aðgengilegra á fleiri stöðum án þess að auka álag á teymið. „Það reynist mjög vel og er einfaldlega miklu þægilegra að hafa allt á einum stað,“ segir Birgitta.

World Class tekur á móti fyrirspurnum viðskiptavina í tölvupósti, Facebook og Instagram

Gervigreind sparar dýrmætan tíma

Elvo nýtir fremstu gervigreindarmódel heims til að leggja til svör við algengum fyrirspurnum. Starfsmenn geta nýtt tillögurnar óbreyttar eða aðlagað þær á örskotsstundu.

Að sögn Birgittu hefur þetta skilað verulegum tímasparnaði. Auk gervigreindarinnar nýtir teymið stöðluð svör sem nú eru aðgengileg beint í kerfinu en voru áður geymd í utanaðkomandi skjölum

Tillögur að svörum frá gervigreind og stöðluðu svörin eru það sem við notum mest. Þetta einfaldar vinnuna og flýtir fyrir.

Birgitta Líf BjörnsdóttirMarkaðsstjóri World Class

Innleiðing á örfáum dögum

Oft fylgir nýjum tæknilausnum flókið innleiðingarferli, en hjá World Class gekk aðlögunin vonum framar. „Það tók starfsfólk aðeins um 1–2 daga að venjast kerfinu. Viðmótið er einfalt og þægilegt, sem hjálpaði mikið,“ segir Birgitta að lokum.

Lærðu meira

Viltu vita meira um Elvo?

Bókaðu kynningu