„Eins og að fá auka starfsmann“ – þjónustuteymi World Class og Elvo

Árný og Linda, þjónustustjórar World Class, svara fyrirspurnum í tölvupósti, á Instagram og á Facebook. Áður gat svar tekið tvo til þrjá daga. Í dag svara þær samdægurs eða innan sólarhrings, og innleiðingin tók innan við tvær vikur.

„Eins og að fá auka starfsmann“ – þjónustuteymi World Class og Elvo

Hjá World Class berst mikið af fyrirspurnum á hverjum degi. Þær snúast um áskriftir, uppsagnir, kortanúmer og allt þar á milli. Árný og Linda, þjónustustjórar World Class, sjá um mestallan póstinn.

Úr Outlook og ChatGPT yfir í eitt kerfi

Áður héldu þær utan um fyrirspurnir í Outlook, og á Instagram og Facebook voru alltaf skilaboð í gangi líka. Önnur þeirra var byrjuð að nota ChatGPT til að hjálpa við svörin, sem þýddi að afrita og líma á milli glugga.

Elvo hefur í rauninni alveg komið í staðinn fyrir það. Við þurfum ekki að fara þar inn og copy-pasta, heldur kemur þetta bara þarna.

Árný og Linda•Þjónustustjórar World Class

Stærsta breytingin, segja þær, er að gervigreindin hjálpar þeim að svara og sparar tímann sem fór í hvern póst.

Samstarfsfólkið inni í sama kerfi

Þó að Árný og Linda noti Elvo mest geta þær merkt samstarfsfólk inn í mál þegar þær þurfa svar við einhverju.

Maður þarf ekki að vera að senda tölvupóstinn áfram og bíða eftir svari. Við getum bara spjallað í skilaboðunum inn á milli, og svo svarað viðkomandi, eða samstarfsfólkið klárað málið sjálft.

Árný og Linda•Þjónustustjórar World Class

Innleiðingin: innan við tvær vikur

Samstarfið við Elvo varðandi innleiðinguna hefur gengið bara frábærlega. Ótrúlega þægileg samskipti og svara fljótt. Við fáum mjög flott svar og yfirleitt lausn strax.

Árný og Linda•Þjónustustjórar World Class

Það leið ekki langur tími þar til teymið var farið að nota Elvo af fullum krafti, innan við tvær vikur. Ábendingar um hvað mætti betur fara skiluðu sér líka fljótt inn í kerfið.

Og augnablikið þegar þetta small er þeim enn minnisstætt:

Ég man ekki nákvæmlega hvaða dagsetning það var, en ég man að ég stökk upp úr stólnum og hljóp fram til hennar: „Þetta er svo geggjað!“ Þá kom svar sem var bara nákvæmlega rétt og ég gat bara ýtt á senda.

Árný og Linda•Þjónustustjórar World Class

Persónulega lokahöndin

Gervigreindin skrifar tillögu, en þær vilja alltaf vita hvað er sent.

Ég vil alltaf hafa persónulega lokahönd á svarinu. Hann kemur með tillögu og við getum breytt og sett okkar lokahönd á eins og við viljum hafa það. Þetta persónulega má ekki detta út.

Árný og Linda•Þjónustustjórar World Class

Flókin mál leysa þær áfram sjálfar. Almennar fyrirspurnir, eins og uppsagnir á áskriftum, eru hins vegar orðnar miklu fljótlegri. Þar koma stöðluð svör líka að góðum notum.

Frá tveimur til þremur dögum niður í sólarhring

Í dag erum við að ná að svara samdægurs eða innan sólarhrings. Ef við værum að vinna eins og áður, þá voru það tveir, þrír dagar.

Árný og Linda•Þjónustustjórar World Class

Auka starfsmaður

Ráðin til annarra fyrirtækja eru stutt: „Go for it. Hiklaust.“

Þetta sparar þvílíkt mikinn tíma að þetta er bara eins og að fá auka starfsmann.

Árný og Linda•Þjónustustjórar World Class

Í einni setningu: „Það er eins og að hafa aðstoðarmann í vinnunni.“

Reynslusaga

Viltu auka starfsmann í þjónustuteymið?

Við sýnum þér hvernig gervigreindin skrifar drög að svörum og teymið þitt á alltaf lokaorðið.

Bóka kynningu