Elvo í Claude og ChatGPT

Sinntu þjónustunni beint í Claude eða ChatGPT.

Tengdu Elvo við Claude eða ChatGPT með einni vefslóð. Spyrðu svo á einföldu máli hvað bíði þín, hvað viðskiptavinur pantaði eða hvernig síðasta vika gekk. Gervigreindin les úr Elvo, skrifar svardrög og heldur hjálparvefnum þínum uppfærðum. Þú ferð yfir og sendir.

Virkar líka með öðrum gervigreindarforritum sem styðja MCP.

Spyrðu eins og þú myndir spyrja samstarfsfélaga.

Gervigreindin leitar í og les samtölin þín, tengiliðina og gögnin í þeim kerfum sem þú hefur tengt við Elvo, svo sem pantanir, reikninga, bókanir og sendingar.

Taktu saman samtalið við Önnu Jónsdóttur.

Les allan þráðinn, þar á meðal innri athugasemdir, og gefur þér stuttu útgáfuna.

Hvað pantaði Anna og er búið að senda það?

Flettir upp pöntunum hennar og sendingunni í þeim kerfum sem þú hefur tengt.

Hvaða opin samtöl í þessari viku snúast um endurgreiðslur?

Leitar í innhólfinu þínu og listar upp það sem finnst, elsta fyrst.

Merktu #4821 sem endurgreiðslu, úthlutaðu því á Gunnar og bættu við athugasemd um að reikningurinn sé kominn í lag.

Merkir, úthlutar og skrifar innri athugasemd. Viðskiptavinurinn sér ekkert af þessu.

Láttu þessi þrjú blunda fram á mánudag og lokaðu þeim sem viðskiptavinurinn hefur staðfest.

Lætur mál blunda og lokar þeim fyrir þig, svo listinn sýni aðeins það sem þarfnast vinnu.

Búðu til staðlað svar út frá því hvernig við svöruðum #4830 um afhendingartafir.

Býr til staðlaða svarið fyrir teymið þitt. Þú getur breytt því í Elvo hvenær sem er.

Tilbúin verkflæði fyrir verkefnin sem þú endurtekur.

Elvo-viðbótin bætir sjö verkflæðum ofan á tenginguna. Hvert þeirra veit hvaða skref á að taka í Elvo, svo stutt spurning dugar.

  • Flokkun í innhólfi

    Fer í gegnum það sem er opið, finnur það sem hefur beðið lengst og leggur til röð til að vinna úr.

    Prófaðu að spyrjaHvað bíður mín núna í morgunsárið?

  • Skrifa svardrög

    Skrifar drög að svari fyrir hvert samtal sem þú bendir á, eftir að hafa flett upp pöntunum eða reikningum viðskiptavinarins. Hún skrifar eingöngu drög og sendir aldrei neitt.

    Prófaðu að spyrjaSkrifaðu svardrög fyrir fimm elstu opnu samtölin mín.

  • Vikuleg skýrsla

    Fjöldi mála, svartímar, árangur hvers starfsmanns og teymis, og hvað viðskiptavinir skrifuðu um, útskýrt á einfaldan hátt.

    Prófaðu að spyrjaHvernig gekk þjónustan í síðustu viku?

  • Þekkingargöt

    Sýnir hverju þjónar Elvo gátu ekki svarað og leggur til þekkingu eða hjálpargreinar til að fylla í götin.

    Prófaðu að spyrjaHverju gat þjónninn okkar ekki svarað í þessum mánuði og hvað ættum við að skrifa?

  • Hjálparvefur

    Skrifar greinar á hjálparvefinn, þýðir þær á milli íslensku og ensku og birtir þær þegar þú gefur grænt ljós.

    Prófaðu að spyrjaBreyttu skilareglunum okkar í hjálpargrein á íslensku og ensku.

  • Stöðluð svör

    Finnur spurningarnar sem þú svarar aftur og aftur, ber þær saman við stöðluðu svörin sem þú ert með og býr til eða bætir stöðluð svör þegar þú biður um það.

    Prófaðu að spyrjaHvaða spurningum svörum við aftur og aftur, og hvaða stöðluðu svörum ættum við að bæta við?

  • Yfirlit um viðskiptavin

    Tekur saman það sem Elvo veit um einn viðskiptavin fyrir símtal, svo sem nýleg og opin samtöl, auk pantana, reikninga eða bókana úr kerfunum sem þú hefur tengt.

    Prófaðu að spyrjaGefðu mér yfirlit um Önnu Jónsdóttur áður en ég hringi í hana.

Verkflæðin fylgja með Elvo-viðbótinni. Hjálpargreinin sýnir hvernig á að setja hana upp Sjá viðbótina á GitHub

Þú hefur fulla stjórn.

Gervigreindin vinnur innan þeirra marka sem þú setur þegar þú tengir hana, og þú getur breytt þeim hvenær sem er.

Hún kemur fram sem þú

Gervigreindin skráir sig inn sem þú og sér nákvæmlega það sama og þú sérð í Elvo. Ekkert umfram það.

Aðeins lesa, ef þú vilt

Veldu aðeins lesa og hún getur leitað og lesið, en getur engu breytt.

Svardrög eru sjálfgefin

Svör eru vistuð sem drög. Starfsmaður les yfir hvert og eitt og sendir.

Aftengdu hvenær sem er

Einn smellur undir Stillingar í Elvo og gervigreindin missir aðganginn innan mínútu.

Stjórnendur sjá allar tengingar

Stjórnandi sér allar tengingar innan fyrirtækisins og getur aftengt hverja þeirra sem er.

Slökkt er á sendingum til viðskiptavina

Gervigreindin getur ekki sent neitt á viðskiptavini nema þú kveikir á því handvirkt. Þegar kveikt er á því staðfestir þú hverja sendingu.

Settu upp í þremur skrefum.

  1. Bættu við tengingunni

    Veldu að bæta við sérsniðinni tengingu í Claude eða ChatGPT og límdu inn þessa vefslóð:

    https://elvo.is/mcp
  2. Skráðu þig inn í Elvo

    Gervigreindin opnar Elvo í vafranum þínum. Skráðu þig inn með venjulega aðganginum þínum.

  3. Veldu hvað hún má gera

    Veldu annaðhvort aðeins lesa eða lesa og skrifa, og láttu slökkt á sendingum nema þú þurfir á þeim að halda. Spyrðu svo fyrstu spurningarinnar.

Algengar spurningar

Hvaða áskriftarleiðir hjá Elvo innihalda þetta?

Allar áskriftarleiðir Elvo: Lítill, Vöxtur, Stór og Sérsniðið. Hver starfsmaður tengir sína eigin gervigreind og fær nákvæmlega þann aðgang sem viðkomandi hefur í Elvo.

Hvaða áskriftarleið í Claude eða ChatGPT þarf ég?

Þú þarft áskriftarleið sem leyfir þér að bæta við sérsniðinni tengingu. Í Claude þarf eigandi að bæta tengingunni við fyrst í Team eða Enterprise áskrift. Ekki allar ChatGPT áskriftir leyfa sérsniðnar tengingar. Hjálpargreinin sýnir gildandi skref fyrir hvert forrit. Lesa hjálpargreinina

Eru gögnin mín notuð til að þjálfa gervigreindarlíkön?

Elvo sendir gervigreindinni aðeins þau gögn sem þú biður um. Hvernig þjónustuveitandi gervigreindarinnar vinnur úr þeim gögnum, þar á meðal hvort þau eru notuð til þjálfunar, ræðst af skilmálum þínum við þann þjónustuveitanda. Lesa persónuverndarstefnuna

Getur gervigreindin sent tölvupóst á viðskiptavini mína?

Ekki nema þú leyfir það. Slökkt er á sendingum sjálfgefið og gervigreindin skrifar drög sem þú ferð yfir og sendir. Ef þú kveikir á sendingum staðfestir þú hverja sendingu og Elvo neitar að senda svör á netföng sem eru ekki þegar hluti af samtalinu.

Virkar þetta með Microsoft Copilot?

Já, það getur virkað í gegnum Copilot Studio. Stjórnandi bætir þá Elvo við sem MCP-tól við erindreka þar og birtir erindrekann. Hjálpargreinin lýsir því hvernig það er gert. Sjá Copilot-hlutann

Get ég notað annað gervigreindarforrit en Claude eða ChatGPT?

Já, ef það styður MCP (Model Context Protocol) með innskráningu. Notaðu sömu vefslóð, https://elvo.is/mcp.

Notarðu ekki Elvo ennþá?

Bókaðu stutta kynningu og sjáðu hvernig innhólfið, þjónarnir og tengingin vinna saman.