Fara beint í efni
Á þessari síðu

Vefþjónusta (API)

Tengdu Elvo við önnur kerfi með REST API-i. Þú getur lesið og skrifað samtöl, tengiliði og fleira fyrir samþættingar og sjálfvirkni.

Elvo er með opið REST API svo þú getir tengt Elvo við önnur kerfi — lesið og skrifað samtöl, tengiliði, notendur og fyrirtækjagögn. Þetta hentar fyrir samþættingar, sjálfvirkni, útflutning gagna og þjóna.

Hvaða leið hentar mér?#

  • Spyrja Claude, ChatGPT eða Copilot um samtölin þín, eða láta þá skrifa drög að svörum: Tengdu Elvo við Claude, ChatGPT eða Copilot. Þú límir inn eina vefslóð og skráir þig inn. Enginn lykill eða kóði.
  • Láta þjón sem keyrir kóða (Claude Code, Codex, Cursor) eða eigið forrit vinna í Elvo: Smíðaðu eigin þjón með API-lykli. Sú leið notar aðgangslykil.
  • Tengja annað kerfi, samstilla gögn eða flytja út samtöl: þessi síða.

Hér eru helstu atriði. Heildarskjölun með öllum endapunktum, viðföngum og dæmum er í API-skjölunum.

Aðgangslyklar#

Búðu til lykil undir Stillingar → Vefþjónustur (þú þarft að vera stjórnandi). Þú velur:

  • Nafn og gildistíma.
  • Aðgang — Lestur (GET/HEAD) eða Skrift (líka POST/PATCH/DELETE).

Lykillinn birtist aðeins einu sinni — afritaðu hann strax og geymdu á öruggum stað. Elvo sýnir hann aldrei aftur.

Auðkenning#

Sendu lykilinn í Authorization-hausnum á hverri beiðni. Grunnslóðin er https://elvo.is/api/public/v1.

curl https://elvo.is/api/public/v1/conversations \
  -H "Authorization: Bearer elvo_xxxxxxxxxxxxxxxxxxxx"

Hvað er hægt að gera#

  • Samtöl — sækja, stofna og uppfæra mál og skilaboð — þar á meðal stöðu, úthlutun, drög, bið og merki (síaðu líka eftir merki með ?tag=).
  • Tengiliðir, viðskiptavinir og notendur — lesa og uppfæra, og bjóða nýjum notendum.
  • Spjall teymisins og tilvísanir — lesa og senda skilaboð til teymisins, og sjá hvar minnst var á þig.
  • Þekking — sýsla með þekkingarheimildir, og sækja lista yfir spurningar sem gervigreindin gat ekki svarað (/knowledge-gaps).
  • Stillingar — teymi, rásir (öll tengd pósthólf, Meta-síður, WhatsApp-númer, spjallþjón og símalínu, ásamt teyminu sem þær beinast í), sjálfvirknireglur, stöðluð svör, merki og sérsniðnir reitir.
  • Skýrslur — frammistöðuskýrslan.
  • Fjarvera — lesa, stilla og hreinsa eigin fjarveru í gegnum /me/out-of-office; virk fjarvera samstarfsfólks birtist sem out_of_office á notendum.

Flytja út samtöl#

Til að flytja út samtöl, til dæmis til að greina þau eða bæta Þekkingu gervigreindarinnar:

  1. Sæktu lista yfir samtölin með GET /conversations. Síaðu eftir rás með channel (beacon_chat fyrir spjallþjóninn, eða rásartegund úr GET /channels) og eftir dagsetningu með created_after. Hver síða rúmar allt að 100 samtöl (limit=100). Sendu pagination.next_cursor sem cursor til að sækja næstu síðu.
  2. Sæktu öll skilaboð hvers samtals með GET /conversations/{id}/comments.

Ef þú vilt aðeins vita hverju gervigreindin gat ekki svarað, skilar GET /knowledge-gaps þeim spurningum beint.

Webhooks#

Skráðu webhooks til að fá tilkynningar í rauntíma þegar atburðir gerast (t.d. þegar nýtt mál berst), í stað þess að spyrja API-ið reglulega. Uppsetning og atburðir eru í API-skjölunum.

Heildarskjölun#

Allir endapunktar, viðföng og kóðadæmi á mörgum tungumálum eru í API-skjölunum — þar geturðu líka prófað beiðnir beint.