Fara beint í efni
Á þessari síðu

Fyrstu skref

Komdu Elvo í gang á nokkrum mínútum: tengdu rás, bjóddu teyminu, settu upp gervigreind og byrjaðu að svara.

Þessi leiðarvísir kemur þér af stað í Elvo á nokkrum mínútum. Þú þarft ekki að setja allt upp í einu — byrjaðu á fyrstu rásinni og bættu við eftir því sem þú venst kerfinu.

Þegar fyrsta rásin er tengd lenda öll erindi hér.
Þegar fyrsta rásin er tengd lenda öll erindi hér.

1. Tengdu fyrstu rásina#

Byrjaðu á að fá erindi inn. Algengast er að tengja tölvupóst:

2. Kynntu þér viðmótið#

Lærðu svæðin fjögur — hliðarstiku, málalista, samtalsglugga og hægra spjald — í Viðmótinu. Þá ratarðu hratt um allt kerfið.

3. Bjóddu teyminu#

Bættu samstarfsfólki við svo þið getið unnið saman í sama innhólfi:

Mundu

Tengdu sameiginleg netföng eins og info@ eða sala@ sem pósthólf og bjóddu hverjum og einum með eigin netfangi. Ekki stofna notanda fyrir sameiginlegt netfang og deila innskráningu þess. Hver notandi er ætlaður einum einstaklingi.

4. Settu upp gervigreind#

Settu algengar spurningar og svör inn í þekkingargrunninn og Elvo byrjar að skrifa drög að svörum. Hann getur svarað sjálfvirkt í spjallþjóninum og svarað einföldum tölvupóstum sjálfur með svörum sem þú hefur samþykkt.

5. Byrjaðu að svara#

Nú ertu komin/n af stað. Lærðu daglega ferlið í Að vinna með mál og Svara viðskiptavinum.

Ábending

Þú þarft ekki að klára öll skrefin strax. Tengdu eina rás, svaraðu fyrstu málunum, og bættu við teymi, reglum og gervigreind þegar þér hentar.