Fara beint í efni
Á þessari síðu

Tengiliðir

Sjáðu hver viðskiptavinurinn er, fyrri samskipti og upplýsingar úr tengdum kerfum, beint við hlið málsins.

Þegar þú opnar mál sýnir hægra spjaldið (Hliðarstika) hver viðskiptavinurinn er: nafn, netfang, rás og fyrri samskipti. Þannig hefurðu samhengið við höndina án þess að leita annars staðar.

Tengiliðaspjaldið birtist hægra megin þegar mál er opið.
Tengiliðaspjaldið birtist hægra megin þegar mál er opið.

Tengiliðurinn í málinu#

Í hægra spjaldinu sérðu upplýsingar um tengiliðinn og getur bætt við nafni, símanúmeri og athugasemdum. Fyrri mál sama viðskiptavinar birtast líka, svo þú sérð alla söguna.

Upplýsingar úr tengdum kerfum#

Ef þú hefur tengt samþættingar (t.d. Shopify eða bókhald) birtast viðeigandi gögn — pantanir, sendingar eða reikningar — beint í spjaldinu.

Tengiliðir og viðskiptavinir#

Elvo gerir greinarmun á tveimur hlutum:

  • Tengiliður er sá sem hefur haft samband, t.d. netfang sem sendi póst eða gestur í spjalli. Tengiliðir verða sjálfkrafa til þegar mál berst, líka þegar þú flytur inn eldri sögu.
  • Viðskiptavinur er fyrirtæki eða einstaklingur sem þú þjónustar, oft með kennitölu. Einn viðskiptavinur getur haft marga tengiliði, t.d. fyrirtæki með nokkra starfsmenn sem skrifa ykkur.

Í Viðskiptavinir (í notandavalmyndinni) sýna Fyrirtæki og Einstaklingar viðskiptavini. Án viðskiptavinar sýnir tengiliði sem eru ekki enn tengdir neinum viðskiptavini.

Svona fyllirðu viðskiptavinalistann#

Viðskiptavinir verða til á fjóra vegu:

  1. Sjálfkrafa úr tölvupósti. Sendandi á léni fyrirtækis (t.d. @terra.is) tengist fyrirtækinu „Terra“ og allir sem skrifa af sama léni fara á sama fyrirtæki. Sendandi á Gmail, Hotmail, Símnet o.þ.h. verður einstaklingur. Þetta á líka við um innflutta sögu. Elvo sleppir ykkar eigin léni, no-reply sendendum og pósti sem endar í rusli, og snertir aldrei tengilið sem er þegar tengdur, tengilið sem þið aftengduð eða lén sem á viðskiptavin sem þið bjugguð til sjálf. Nafn fyrirtækis er dregið af léninu og þú getur breytt því. Stillt í Stillingar → Sérsniðnir reitir → Sjálfvirkir viðskiptavinir: fyrirtæki og einstaklingar, aðeins fyrirtæki eða slökkt.
  2. Handvirkt. Opnaðu mál eða tengilið, veldu Tengja viðskiptavin í hægra spjaldinu og leitaðu að viðskiptavini eða veldu Nýr viðskiptavinur. Með kennitölu sér Elvo sjálft hvort um fyrirtæki eða einstakling er að ræða.
  3. Í gegnum spjallgluggann. Ef vefurinn ykkar auðkennir innskráða notendur með identify (sjá Spjallþjónn) verður company að fyrirtæki og tengiliðurinn tengist því.
  4. Í gegnum API. Ef þið eigið viðskiptavinaskrá annars staðar (t.d. í bókhaldi eða CRM) getur forritari stofnað viðskiptavini og tengt tengiliði við þá með API.

Algengar spurningar#

Get ég falið tengiliðaspjaldið? Já — smelltu á spjaldtáknið efst til hægri til að opna eða loka því.

Eru athugasemdir á tengilið sýnilegar viðskiptavininum? Nei, þær eru innri.

Af hverju er tengiliður enn undir Án viðskiptavinar? Annaðhvort er slökkt á sjálfvirkum viðskiptavinum, sendandinn er á ykkar eigin léni eða no-reply, þið aftengduð hann, eða lénið hans á þegar viðskiptavin sem þið bjugguð til sjálf. Þá tengirðu hann handvirkt.