ElvoHandbók ElvoLeiðbeiningar og svör um Elvo

Notaðu eigin gervigreind í Elvo

Leyfðu gervigreind á borð við Claude, ChatGPT, Codex eða Cursor að lesa, flokka og svara samtölum í Elvo í gegnum opinbera API-vefþjónustuna.

Þú getur leyft þinni eigin gervigreind að vinna í Elvo: Claude Code, Claude, OpenAI Codex, ChatGPT, Cursor, eða forritsbúti sem þú skrifar sjálfur. Gervigreindin þín notar opinberu API-vefþjónustuna og getur því gert flest það sem þú getur gert í stjórnborðinu.

Það sem gervigreindin getur gert

Gervigreindin þín getur til dæmis:

  • Skrifað drög að svörum við nýjum samtölum sem starfsmaður yfirfer og sendir.
  • Flett upp eldri tölvupóstum og sögu viðskiptavinarins áður en hún svarar.
  • Vaktað innhólfið og merkt áríðandi mál með merki eða innri athugasemd.
  • Merkt samtöl, úthlutað þeim, lokað þeim eða sett þau í bið.

Hún getur einnig sent svör beint, bætt við innri athugasemdum og minnst á samstarfsmenn, flett upp tengiliðum, notendum og teymum, og sinnt stjórnunarverkefnum eins og sjálfvirknireglum, þekkingargrunni gervigreindarinnar og árangurskýrslum. Ítarlegar tæknilegar upplýsingar er að finna í API-skjölunum.

Aðgangur að API fylgir Vöxtur-leiðinni og þeim stærri.

Skref 1: Búa til aðgangslykil

Farðu í Stillingar → API og gervigreind og smelltu á Búa til lykil (þú verður að vera stjórnandi). Gefðu honum nafn, til dæmis „Claude flokkun“, og veldu aðgangsmöguleika:

  • Lesa: gervigreindin getur aðeins skoðað gögn (GET beiðnir). Gott er að byrja hér, til dæmis fyrir vöktun og samantektir.
  • Lesa + skrifa: gervigreindin getur einnig svarað, bætt við athugasemdum og breytt samtölum.

Veldu gildistíma, afritaðu svo lykilinn (hann byrjar á elvo_) og geymdu hann á öruggum stað. Elvo sýnir hann aðeins einu sinni.

Lykillinn virkar eins og þú. Gervigreindin getur séð og gert allt sem þú mátt gera í Elvo, þar á meðal skoðað einkaskilaboðin þín og þitt persónulega innhólf.

Skref 2: Beindu gervigreindinni þinni að Elvo

Elvo býður upp á tvær skrár sem eru sérstaklega skrifaðar fyrir gervigreindarforrit:

Gervigreindarforrit sem geta keyrt skipanir (Claude Code, Codex, Cursor) kalla á API-vefþjónustuna með curl eða stuttum forritsbúti. Gefðu gervigreindinni lykilinn sem umhverfisbreytu, til dæmis ELVO_API_TOKEN, en ekki beint í spjallinu sjálfu. Byrjaðu svo með fyrirmæli eins og þessi og aðlagaðu verkefnið að þínu teymi:

You help our support team in Elvo, our helpdesk.
Read https://elvo.is/llms.txt first. Use the OpenAPI spec at
https://elvo.is/api/public/v1/openapi.json for exact fields.
Base URL: https://elvo.is/api/public/v1
Auth: send "Authorization: Bearer $ELVO_API_TOKEN" on every request.

Task: list open conversations whose latest customer message has waited more
than 30 minutes for a reply. For each one, read the full thread (include
internal notes and events), then save a proposed reply as a draft for a
person to review. Do not send replies to customers. If you are unsure, add
an internal note instead. At the end, summarize what you did.

Dæmi um verkefni

Allar slóðir hér að neðan eru undir https://elvo.is/api/public/v1.

Finna samtöl sem þarfnast svars

curl "https://elvo.is/api/public/v1/conversations?unanswered_for_minutes=30&archived=hide" \
  -H "Authorization: Bearer $ELVO_API_TOKEN"

Þú getur líka síað eftir status, team_id, assigned_to_id, tag og channel, eða leitað í efnislínum með q.

Lesa samtal

GET /conversations/{id}/comments?include_internal=true&include_events=true skilar skilaboðum, innri athugasemdum og atburðum, nýjustu fyrst. GET /contacts/{id} skilar tengiliðnum.

Fletta upp sögu viðskiptavinar

GET /contacts?email=anna@example.com finnur tengiliðinn. Svo sýnir GET /conversations?contact_id=<id> öll fyrri samtöl þess viðskiptavinar.

Vista svar sem drög til yfirlestrar

PUT /conversations/{id}/draft með {"content": "..."} vistar drög í svarglugganum. Ekkert er sent. Starfsmaður opnar svo samtalið, lagfærir drögin og sendir.

Senda svar

curl -X POST https://elvo.is/api/public/v1/conversations/<id>/comments \
  -H "Authorization: Bearer $ELVO_API_TOKEN" \
  -H "Content-Type: application/json" \
  -d '{"content":"Hi Anna, your order shipped today.","to":["anna@example.com"],"status":"resolved"}'

Í tölvupóstsamtölum er to nauðsynlegt. Elvo sendir nákvæmlega á þau netföng sem þú gefur upp.

Bæta við innri athugasemd

Notaðu sama endapunkt með "is_internal": true. Athugasemdin er aðeins sýnileg teyminu þínu og er aldrei send til viðskiptavinarins. Minnst er á samstarfsmann með @[Nafn].

Úthluta, merkja og breyta stöðu

curl -X PATCH https://elvo.is/api/public/v1/conversations/<id> \
  -H "Authorization: Bearer $ELVO_API_TOKEN" \
  -H "Content-Type: application/json" \
  -d '{"assigned_to_id":"<user-id>","tags":["billing"],"status":"pending"}'

tags kemur í staðinn fyrir allan listann af merkjum. Sæktu auðkenni notenda með GET /users og auðkenni teyma með GET /teams.

Vakta nýjan tölvupóst

Einföld lykkja virkar vel: á 2 til 5 mínútna fresti er kallað á GET /conversations?unanswered_for_minutes=5&archived=hide. Það skilar opnum samtölum og samtölum í bið þar sem nýjustu skilaboðum viðskiptavinar hefur ekki enn verið svarað. Láttu gervigreindina muna hvaða samtöl og skilaboð hún hefur þegar afgreitt svo hún grípi ekki tvisvar inn í.

Hver lykill getur gert 200 lesbeiðnir og 60 skrifbeiðnir á mínútu, svo regluleg vöktun á nokkurra mínútna fresti notar sáralítið af þeim mörkum. Ef þú þarft breytingar í rauntíma skaltu frekar skrá webhook (conversation.created, comment.created). Webhook-kall krefst þess að þú hafir vefþjón sem getur tekið á móti beiðnum.

Öryggi

  • Byrjaðu á lesaðgangi. Ekki búa til lykil með skrifaðgangi fyrr en þú treystir niðurstöðum gervigreindarinnar.
  • Yfirfara áður en sent er. Leyfðu gervigreindinni að vista drög þar til þú hefur yfirfarið vinnuna hennar, og leyfðu henni fyrst þá að senda svör beint.
  • Innri athugasemdir eru áfram innri. Athugasemd sendir aldrei tölvupóst á viðskiptavininn, en svar gerir það.
  • Haltu lyklinum leyndum. Hann hefur sömu réttindi og þú. Geymdu hann í umhverfisbreytu eða í lyklageymslu, aldrei í opnum fyrirmælum eða í kóða sem þú vistar í útgáfustýringu.
  • Afvirkjaðu það sem þú notar ekki. Stilltu gildistíma og afvirkjaðu gamla lykla undir Stillingar → API og gervigreind. Afvirkjaður lykill hættir strax að virka.

Nánar

  • API-skjöl: allir endapunktar og svæði, þar sem þú getur prófað beiðnir í beinni.
  • Vefþjónusta (API): lyklar, auðkenning og webhook-köll.

Á þessari síðu