ElvoHandbók ElvoLeiðbeiningar og svör um Elvo

Fyrirtækisstillingar

Stilltu nafn, merki, tungumál og almennar stillingar vinnusvæðisins.

Undir fyrirtækisstillingum (Almennt) stýrir þú grunnupplýsingum vinnusvæðisins — því sem birtist viðskiptavinum og gildir fyrir allt teymið.

Fyrirtækisstillingar undir Stillingar → Almennt.
Fyrirtækisstillingar undir Stillingar → Almennt.

Grunnupplýsingar

Opnaðu Stillingar → Almennt. Þar stillir þú:

  • Heiti og merki (logo) fyrirtækisins.
  • Lén og auðkenni vinnusvæðisins.
  • Nafn sendanda sem birtist í tölvupóstum frá Elvo.
  • Heimilisfang ef við á.

Tungumál

Veldu aðaltungumál vinnusvæðisins og þau studd tungumál sem teymið getur svarað á (t.d. íslenska og enska). Þetta stýrir m.a. á hvaða tungumálum gervigreindin getur svarað.

Loka öllum opnum málum

Hér er líka hægt að loka öllum opnum málum í einu — gagnlegt þegar þú flytur inn eldri póst og vilt ekki að allt lendi sem opin mál. Þú getur afturkallað það strax á eftir.

Algengar spurningar

Hver getur breytt fyrirtækisstillingum? Stjórnendur — sjá Notendur og hlutverk.

Breytir merki því sem viðskiptavinir sjá? Já, merkið birtist m.a. hjá spjallþjóninum.

Á þessari síðu