ElvoHandbók ElvoLeiðbeiningar og svör um Elvo

Áskrift og verðskrá

Veldu áskriftarleið, sjáðu hvað fylgir hverri, og stýrðu greiðslum og reikningum.

Elvo er með nokkrar áskriftarleiðir eftir stærð og þörfum fyrirtækisins. Undir áskrift sérðu hvað fylgir hverri leið, velur þá sem hentar, og sérð reikningana þína.

Áskrift og verðskrá undir Stillingar → Áskrift.
Áskrift og verðskrá undir Stillingar → Áskrift.

Áskriftarleiðir

  • Lítill — fyrir minni teymi: sameiginlegt innhólf, sjálfvirkar reglur og email-stuðningur.
  • Vöxtur — bætir við greiningum (Frammistaða), öllum rásum (m.a. Facebook og Instagram) og opnu vefþjónustu-API-i og webhooks.
  • Stór — fyrir stærri fyrirtæki: SSO (SAML/Entra), audit log og sérsniðnar AI-persónur fyrir hvert teymi.

Smelltu á Velja leið til að skipta um áskrift.

Sérsniðin lausn

Fyrir stærri fyrirtæki bjóðum við sérsniðið verð, gagnavinnslusamninga (DPA), SLA og innleiðingu. Hafðu samband við Stefán framkvæmdastjóra beint úr áskriftarsíðunni.

Reikningar

Elvo rukkar með reikningum (ekki greiðslukortum). Reikningur er sendur í lok hvers mánaðar með eindaga 15. næsta mánaðar.

Algengar spurningar

Hvað kostar hvert sæti? Verð per sæti á mánuði birtist við hverja leið (auk vsk.).

Get ég skipt um leið hvenær sem er? Uppfærslur taka strax gildi. Niðurfærslur taka gildi frá næstu mánaðamótum.

Á þessari síðu