ElvoHandbók ElvoLeiðbeiningar og svör um Elvo

Fyrstu skref

Komdu Elvo í gang á nokkrum mínútum — tengdu rás, bjóddu teyminu, settu upp gervigreind og byrjaðu að svara.

Þessi leiðarvísir kemur þér af stað í Elvo á nokkrum mínútum. Þú þarft ekki að setja allt upp í einu — byrjaðu á fyrstu rásinni og bættu við eftir því sem þú venst kerfinu.

Þegar fyrsta rásin er tengd lenda öll erindi hér.
Þegar fyrsta rásin er tengd lenda öll erindi hér.

1. Tengdu fyrstu rásina

Byrjaðu á að fá erindi inn. Algengast er að tengja tölvupóst:

2. Kynntu þér viðmótið

Lærðu svæðin fjögur — hliðarstiku, málalista, samtalsglugga og hægra spjald — í Viðmótinu. Þá ratarðu hratt um allt kerfið.

3. Bjóddu teyminu

Bættu samstarfsfólki við svo þið getið unnið saman í sama innhólfi:

4. Settu upp gervigreind

Matar þú þekkingargrunninn með algengum spurningum og svörum byrjar Elvo að semja drög að svörum — og getur svarað sjálfkrafa gegnum spjallþjóninn.

5. Byrjaðu að svara

Nú ertu komin/n af stað. Lærðu daglega ferlið í Að vinna með mál og Svara viðskiptavinum.

Ábending

Þú þarft ekki að klára öll skrefin strax. Tengdu eina rás, svaraðu fyrstu málunum, og bættu við teymi, reglum og gervigreind þegar þér hentar.

Á þessari síðu