Gmail / Google Workspace
Tengdu Gmail eða Google Workspace netfang við Elvo með innskráningu — Elvo tekur þá við og sendir póst fyrir þína hönd.
Bein tenging við Gmail eða Google Workspace er einfaldasta leiðin: Elvo tekur við pósti og sendir fyrir þína hönd, og allt — líka sendur póstur — helst samstillt.
Tengja
- Opnaðu Stillingar → Tölvupóstur og smelltu á Bæta við reikningi.
- Veldu Google.
- Skráðu þig inn með Google-reikningnum og samþykktu heimildirnar sem Elvo biður um.
- Þegar tengingu er lokið birtist netfangið í listanum og póstur byrjar að berast.
Google Workspace
Ef fyrirtækið notar Google Workspace gæti stjórnandi þurft að samþykkja aðganginn fyrir lénið.
Þú getur líka tengt sameiginleg netföng (t.d. hjalp@) sem þú hefur aðgang að.
Heimildir sem Elvo biður um
Pósthólfstenging biður um þrjú Google scope og ekkert annað:
https://www.googleapis.com/auth/gmail.readonly, til að lesa móttekinn pósthttps://www.googleapis.com/auth/gmail.send, til að senda svörin þínhttps://www.googleapis.com/auth/userinfo.email, til að staðfesta hvaða netfang var tengt
Elvo biður aldrei um heimild til að eyða pósti og biður alls ekki um neitt í Drive, Calendar eða
Contacts. OAuth client ID er
853336223311-tc2ad1uq5avlmkrd663umc2ohm52v81g.apps.googleusercontent.com.
Innskráning í Elvo með Google reikningi er sérstakt forrit með eigin client ID,
933020642426-12fjnfb4dj76t62sdausf9pesdo46min.apps.googleusercontent.com, og það biður aðeins um
openid, email og profile. Sjá Notendur og hlutverk.
Heimila Elvo á Workspace léni
Ef App access control er takmarkað í Google Workspace hjá ykkur, þarf stjórnandi að treysta forritinu áður en einhver getur tengt pósthólf:
- Google Admin console, Security, Access and data control, API controls.
- App access control, Configure new app, OAuth App Name Or Client ID.
- Límdu client ID pósthólfsins hér að ofan og merktu það Trusted.
Ef þú rekur fleiri en eitt Workspace lén, þarf að gera þetta í hverju þeirra.
Algengar spurningar
Þarf ég admin-aðgang? Fyrir persónulegt Gmail nægir þinn eigin reikningur. Fyrir Workspace-lén gæti stjórnandi þurft að heimila Elvo.
Sést sendur póstur úr Gmail? Já — póstur sem þú sendir úr Elvo birtist líka í „Sent“ í Gmail.
Hvað ef tengingin rofnar? Skráðu þig inn aftur undir Stillingar → Tölvupóstur til að endurnýja heimildina.
Helst tengingin þegar sá sem setti hana upp hættir? Já. Pósthólf fyrirtækis tilheyrir fyrirtækinu, ekki þeim einstaklingi sem tengdi það, og heimildin kemur frá Google reikningnum sem skráður var inn í samþykkisglugganum, það er pósthólfið sjálft. Að gera þann einstakling óvirkan í Elvo breytir engu. Tengingin rofnar aðeins frá Google hliðinni: pósthólfsreikningnum er eytt eða hann gerður óvirkur, heimildin er afturkölluð, eða netfanginu er breytt í hóp eða alias.
Get ég tengt hópnetfang eða alias? Nei. Google tengingin þarf raunverulegt pósthólf. Notaðu áframsendingu fyrir hópnetföng í staðinn.