Tengja tölvupóst
Áframsending
Tengdu hvaða netfang sem er við Elvo með því að áframsenda póst á sérstaka Elvo-móttökuslóð.
Áframsending virkar fyrir hvaða netfang eða póstþjón sem er — líka þegar bein Google- eða Microsoft-tenging er ekki í boði. Þú lætur póstkerfið þitt senda allan póst sjálfkrafa á sérstaka móttökuslóð hjá Elvo.
Tengja
- Opnaðu Stillingar → Tölvupóstur og smelltu á Bæta við reikningi.
- Veldu Áframsending. Elvo gefur þér sérstakt
@inbound.elvo.isnetfang. - Settu upp áframsendingu (e. forwarding) í þínu póstkerfi þannig að allur póstur berist á þá slóð.
- Smelltu á Senda prufu aftur til að staðfesta að póstur berist rétt. Staðan á að sýna Staðfest.
Senda svör frá þínu netfangi
Til að svör fari út frá þínu eigin netfangi (ekki @inbound.elvo.is) þarf póstkerfið að leyfa
Elvo að senda fyrir þína hönd, eða þú stillir SMTP. Án þess fara svör frá sjálfgefnu netfangi.
Algengar spurningar
Sér viðskiptavinurinn @inbound.elvo.is? Nei — það er aðeins innri móttökuslóð.
Nær áframsending til eldri pósts? Nei, aðeins nýs pósts eftir að áframsending er sett upp.